Thursday, August 24, 2006

Dugnaður???


Bara smá hugleiðingar, ekkert alvarlegt, og alls ekki kommúnistaáróður, enda er ég enginn kommi, eiginlega bara kapitalisti inn við bein og eiginhagsmunaseggur, sem hefur aldrei framið nokkra góðgerð á ævinni.

Það er eitt í allri þessari Háglauna/launamuns-umræðu sem stingur mig svolítið. Það er einkennileg notkun á orðinu duglegur, oftast þá notað um þá sem eiga hvað mest af peningum í þessu þjóðfélagi. Það sem mér finnst einkennilegt er þetta samansem merki sem sett er á milli efnaður og duglegur, þ.e. vel efnaður = duglegur maður.
Maður hefur heyrt og lesið setningar eins og, “Mér finnst ekkert að því ef fólk er duglegt að þá fái það tugi milljóna á mánuði í laun”. Mér finnst ekkert nema frábært að fólk sé duglegt og mér finnst allt í góðu með að fólk fái gríðarlega há laun, en mér finnst þessi jafna forríkur = duglegur bara svo ósanngjörn að því að hún virðist líka bera með sér andstæðu, þ.e.a.s. láglaunaður = óduglegur, eða jafnvel rétt-nær-endum-saman = letingi. Þó veit ég að þegar menn tala svona eins og dæminu hér á undan þá eru þeir ekki að meina að þeir sem eru í þessum láglauna flokki séu ekki duglegir, en þetta er svolítið óheppileg og svarthvít fullyrðing.
Ég tel íslensku þjóðina nefnilega vera ákaflega duglega bara svona yfir heildina litið. Kynslóðir á undan okkur þurfta algjörlega að vinna fyrir sínu og tel ég mína kynslóð t.d. njóta góðs af því.
En svo er spurninginn: Hvað er að vera duglegur??? Að vinna baki brotnu í 50 ár við t.d. verkamannavinnu, koma upp góðu heimili, ala upp börn, ná að njóta góðra stunda með sínum nánustu svona af og til, sjá verðmæti í óveraldlegum hlutum myndi ég telja bara vel af sér vikið. Er það eitthvað óduglegri framistaða en að fara aðrar leiðir, eins og að fara í viðskiptanám, nota kænsku sína og reynslu í fjármálum til að koma sér upp gríðarlegu fjármálaveldi og kaupa svo hlut í Glitni á 905 milljónir króna. Það er að sjálfsögðu einnig vel af sér vikið en myndi það mælast sjálfkrafa sem meiri dugnaður???
Ég tel sjálfan mig vera nú nokkuð duglegan mann enda hefur mér tekist að þéna bara mjög vel á síðustu árum og finnst mér það frábært, en það þýðir ekki að hver sem er geti gert það sama og ég. Það er vegna þess að það eru miklu fleirri breytur sem móta starfsframa og lífsgöngu fólks. Val forfeðra okkar, uppeldi, aðstæður af ýmsum toga, hvatning, áhugi, félagsskapur, hæfileikar, lánsemi eru þættir sem hafa líka gríðarleg áhrif. Það er jú nokkur sannleikur í því að hver er sinnar gæfusmiður og einstaklingur í þjóðfélagi sem okkur fær mjög mikið ráðið um sín örlög en það nær held ég bara svo og svo langt.
Það sjá það held ég allir að það geta ekkert allir fengið sömu stöðuna, það er alltaf einhver sem trónir yfir aðra. “Þjóðfélagspíramídinn”, ef svo mætti kalla, mun alltaf og hefur líklega alltaf verið til. Það að einhver taki forystu og skari fram úr öðrum er algjörlega í náttúrunnar eðli og því verður held ég seint breytt.
Æji…. Fokkitt… nenna ekki að skrifa meira um þetta..
“you get the point”!!!

Niðurstaöan sem ég er að reyna að komast að er líklega sú að dugnaður þinn er ekki endilega í beinu hlutfalli við lausafjárstöðu þína.

Annars vil ég bara ást, velferð og frið með öllum mönnum sem ég hef velþóknun á.
Afsakið sdaffsetnninngarvyllurnnar.
Og verið blíð í commentum ykkar.
Alrighty…

Thursday, August 17, 2006

Imogen Heap

Verðið að tjekka á þessu: Hide and seek með Imogen Heap
http://www.youtube.com/watch?v=5cpSv2mNhhc
Þetta er On-woman-band, og þetta lag er bara gæsari út í gegn, nett snilld finnst mér.
Skoðið líka hvernig hún flytur þetta live, (ég átti svona hljómborð einu sinni)
http://www.youtube.com/watch?v=4lemLl9s9Vc
Hér er hún með fleiri græjur, doldið cool:
http://www.youtube.com/watch?v=O_FCdOacpeA
Þar hafiði það...

í grenndinni...

Er að horfa á Höllu Margréti, sem söng Hægt og hljótt, syngja O sole mio í Kastljósinu. Somebody kill me!!!

Frábært hjá Toby i Rockstar að taka Solsbury Hill og rústa því, þá meina ég rústa því eins og eyðileggja það, lagið er ónýtt. Lagið er ekki TIL lengur. Hann klúðraði öðru hverju orði í textanum, söng vitlausa laglínu (algerlega óviljandi held ég) og var að klikka á "my heart saying boom boom boom" línunni og allur pakkinn. PÚUÚÚÚÚÚÚ!!!!
Ekki var nú Gilby Clarke betri, það var eins og hann væri að spila "introið" á einn streng og "tæmaði" líka mjög illa.
En nóg um það.

Fór í Nettó um daginn og þar stóð við Hraðkassann: "H-mark 10 hlutir", af hverju H-MARK en ekki bara HÁMARK, átti þetta að vera einhver stytting eða bara töff???

Fleiri Kjörbúðasögur: Fór í Þina Verslun um daginn og þegar ég kem að kassanum er gömul kona standandi, ræðandi við afgreiðslustúlkuna. Afgreiðslustúlkan segir við konuna: "Nei, ég veit ekki verðið á þessari samloku að því að það er ekki búið að skrá það inn í kerfið, þú verður bara að fara og athuga verðið þar sem þú tókst samlokuna." Og gamla konan virtist verða bæði skömmustuleg og hissa, byrjaði að ganga rólega í gegnum alla búðina til að finna út verðið. Hvernig finnst ykkur þetta.

Annars er ég í filingi, konan í útlöndum, og ég og litla dúllan bara skilinn eftir á skerinu, það er allt í lagi.
jæja.. þetta er nóg í bili ..

Thursday, August 03, 2006

Lasinn

Þetta er ALVEG ROSALEGT!!! SHEIZE!!!
http://www.youtube.com/watch?v=7_rBidCkJxo
Annars er ég bara heima lasinn, og leiður..
Ætla að vera heima í bænum um helgina og gera kannski eitthvað sniðugt með krúttunum mínum tveimur. Förum kannski eitthvað í lautarferð og upplifum eitthvað skemmtilegt, kannski að maður kíki í fjölskyldugarðinn og upplfium svona smjörþef af útihátíðarstemmara.
Ég hef aldrei farið á þjóðhátíð og mun líklega aldrei úr þessu, flestir segja mér að það sé "möst", en mér er eiginlega alveg skítsama.
Jæja.. nenni þessu ekki ..