Friday, July 01, 2005

Skrítið!!

Var að lesa eitthvað dagblað um daginn. Þar var kona að segja að það væri svo fáranlegt með allar þessar "Birgittur, Jónsa, og Bubba" hér á landi hve gjörn þau væru á að auglýsa sig um jólin. Sýna á sér sínar bestu hliðar, opinbera sitt fjölskyldu líf og persónulega hagi BARA til þess að GRÆÐA, (sem er auðvitað versta synd sem til er, er það ekki??). Svo þegar það hentar þeim ekki og umfjöllunin er slæm þá fara þessar stjörnur alltaf að væla!!!
OK!! FINE!! Semsagt þegar þessi kona fer t.d. í atvinnu viðtal þá hlýtur hún þá að segja frá öllum sýnum syndum er það ekki. Hún hlýtur að segja frá því þegar hún hélt framhjá manninum sýnum og líka frá því þegar hún ældi yfir sig alla á hestamannamótinu í fyrra. Hún hlýtur nú líka að sýna myndir af sér ofurölvi í KÖBEN með jónu í kjaftinum. Auðvitað gerir hún þetta til að sýna ALLS EKKI sýnar bestu hliðar því þá gæti hún hugsanlega fengið DJOBBIÐ og hugsanlega grætt pening. Og eins og við vitum er það ekkert nema hræsni.
Svo var önnur kona sem skrifaði í blaðið. Þar benti hún á að Slúðurblöð væru og hefðu verið til lengi lengi ERLENDIS. Þess vegnu ættu íslendingar ekkert að vera að kvarta yfir tilvist þeirra hérlendis. OH MY FUCCKING GOD!!! Af hverju eru til svona fávitar. Það er líka til BARNAÞRÆLKUN erlendis, morðtíðni er miklu hærri í Perú heldur en á Íslandi, menn hella sýru í andlit eiginkvenna sinna í Tyrklandi ef þeir gruna þær um framhjáhald. VERÐUM VIÐÞÁ EKKI AÐ HAFA SOLLEIS HÉRNA Á KLAKANUM!!! JÚ AUÐVITAÐ DRÍFUM Í ÞESSU!!!
AAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGHHHHH!!!!!!
Svo sagði Sverrir Stormsker að Bubba væri nú bara búinn að gefa út skotleyfi á sig með því að vera frægur. SVERRIR sagðist líka ætla að hjálpa DV að finna mýnd af sjálfum sér að rúnka sér. Sverrir er líka frægur svo að hann hlýtur að vilja vera næstur.
Takk fyrir í bili!!

1 Comments:

At 12:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Sverrir er hálfviti og segir sjaldnast neitt af viti, en það kom þó eitt uppúr honum í þessum litla viðtalsbút sem mér þótti fyndið. En það var eitthvað á þá leið að meira að segja Bubbi yrði að átta sig á því að ef maður pissaði endalaust í teppið getir meður ekki verið að nöldra yfir hlandlyskt í stofunni. Ekkert vit í þessu náttúrulega - en mér fannst þetta svolítið fyndið...

 

Post a Comment

<< Home