Friday, July 08, 2005

Barinn af róna!!

Lenti í ótrúlegu atriði um daginn meðan ég stóð fyrir utan Tónabúðina. Mjög svo ógæfulegur róni kemur arkandi að mér, þar sem ég stóð þarna í sakleysi mínu, og tekur örlítið tilhlaup og kýlir eitt vindhögg í átt að höfðinu á mér. Svo labbaði hann barasta í burtu en kemur svo aftur mjög skömmu síðar og spyr mig "Errr dúuaah... uhh ..feniniistmisti... helllíti itt" (þýðing: "Ert þú femínisti helvítið þitt??"). Svo byrjaði hann bara að lemja í búkinn á mér, ekki mjög fast en þó reyndi hann mjög. Ég sagði honum að hypja sig en þá ákvað hann að gefa mér eitt gott hnéspark í mjöðmina og rauk svo burt eftir að hafa ausað yfir mig einhverjum fúkyrðum sem ég skildi ekki. Magnað. Ég vissi ekki hvort ég átti að vera reiður eða bara hlægja. En ég ákvað bara að hlægja að þessu.
takk fyrir í bili..

1 Comments:

At 9:46 PM, Anonymous Anonymous said...

Þetta er alveg magnað hvernig þetta pakk er orðið en samt fynst mér þú vera heppin, það er neblega minn stæðsti draumur að róni mundi ráðast á mig þá mindi ég losa okkur um einn.
LUF JÚ stebbi minn

 

Post a Comment

<< Home