Tuesday, February 08, 2005

Sheize Beize!!

Þetta er svakalegt hvað ég er alltaf latur að blogga!! maður er auddað bara svo bissí.. má nebblega ekki blogga í vinnunni. En ég ætla að vera með góða net-tengingu þar sem ég er að fara búa næstu 5- 15 árin svo að þá kannski bloggar maður almennilega í sumarfríinu og í fæðingar orlofinu.
Eitt mjög skrítið og fyndið og skemmilegt. Það er alltaf verið að hringja í mig þessa daga og spyrja eitthvað eins og: "hey stebbi vantar þig ekki barnarúm??" , "hey vantar þér ekki rúm?"" " vantar ykkur eldhúsborð?" eða eitthvað eins og "ég get látið þig fá skiptiborðið okkar við erum hætt að nota það". "Já já ekkert mál þið fáið bara sófan þegar þið viljið flytja"???
Bara allt í einu eru ALLIR að hringja í mann og vilja endilega gefa manni eitthvað, bara eins og fólk eigi lífið að leysa!!
Ekki var þetta nú svona áður fyrr.. "hey stebbi vantar þig ekki DVD spilara með meðfylgjandi heimabíókerfi,.... hey vantar þig ekki líka kassa af bjór... hey nú man ég!! ég á flugmiða fyrir tvo til NEW YORK ásamt hótelgistingu í 2 vikur sem ég er hættur að nota"!!!
En þetta er eflaust annars eðlis!!
Annars er ég búinn að vera að spila í Fólk með Sírrý.. það er bara soldið magnað djobb.. sit og spila og spila og svo byrjað sjálfur þátturinn og þá spila ég bara svona inn í auglýsingar og út úr þeim.. og stundum meðan fólk að er að tala og solleis.. svo bara fer maður heim og hlær svo alla leið í bankann!!
En ég komst að því að Íslendingar eru soldið spes (spes = hálfvitar). Idol þátturinn síðasti sýndi það og sannaði. HEIÐA Í ÞREMUR NEÐSTU SÆTUM??? Æji kannski skil ég bara ekkert þessa keppni. En ég er á því að Heiða er allt of góð fyrir þessa keppni.

Leikari dagsins er Eric Roberts þar sem hann er jafngóður leikari og að þjóðarmorð eru fyndin!!

bæ bæ