Wednesday, July 20, 2005

AKUS

Ég skellti mér á netið í gær og barasta keypti svona eins og tvo flugmiða til London 17. september OG tvo miða á Alison Krauss and the Union station konsert í Carling Apollo Hammersmith þann 18. september. Ég og konan ætlum að skella okkur og njóta þess mikið.
Ligga ligga lá!!!!!

"Practice makes perfect, but nobody is perfect, so why practice??" - Billy Corgan, Smashing Pumpkins / Swan.

Monday, July 18, 2005

Ég á nýjan bíl!!!

Hæ hæ..
Vitiði hvað ég gerði fyrir stuttu?? Ég stal bíl!! Glænýr og flottur. Ég fór upp í Heklu eina nóttina og sá að það væri ekkert mál að stela svona eins og einni nýrri Toyotu svo ég gerði það. En svo er spurning hvort að helvítis Heklumenn, (sem eru ekkert nema nískir aurapúkar sem mjólka landann með því að selja bíla á uppsprengdu verði), fari eitthvað að kvarta. En þeir geta bara farið í rassgat. Ég meina komm on. Ég er sá sem er að keyra á bílnum og það sjá mig allir á götum úti og hugsa: “Vá flottur bíll… best að fara upp í Heklu og kaupa mér svona, jafnvel tvo”!! Og svo leyfi ég öllum vinum mínum að prófa, jafnvel lána hann í nokkra daga og þá jafnvel kaupa þeir hann líka. Þannig að í raun er Hekla bara að stórgræða á þessum stuld mínum.
Ekki það að ég var nú eiginlega búinn að ákveða líka að ef mér líkaði við bílinn þá myndi ég nú bara borga hann, er samt ekki alveg viss, ætla að prófa hann svolítið lengur. Ef ykkur vantar bíl þá get ég bara brennt…. Fyrirgefiði RENNT niðureftir og náð í einn fyrir ykkur. Það er svo rosalega lélegt þjófavarnar-system þarna hjá þeim í Heklu að það er EKKERT mál að stela frá þeim.

Sjámst í umferðinni!!!

-Stefán “Bílasafnari”!!

Friday, July 08, 2005

Barinn af róna!!

Lenti í ótrúlegu atriði um daginn meðan ég stóð fyrir utan Tónabúðina. Mjög svo ógæfulegur róni kemur arkandi að mér, þar sem ég stóð þarna í sakleysi mínu, og tekur örlítið tilhlaup og kýlir eitt vindhögg í átt að höfðinu á mér. Svo labbaði hann barasta í burtu en kemur svo aftur mjög skömmu síðar og spyr mig "Errr dúuaah... uhh ..feniniistmisti... helllíti itt" (þýðing: "Ert þú femínisti helvítið þitt??"). Svo byrjaði hann bara að lemja í búkinn á mér, ekki mjög fast en þó reyndi hann mjög. Ég sagði honum að hypja sig en þá ákvað hann að gefa mér eitt gott hnéspark í mjöðmina og rauk svo burt eftir að hafa ausað yfir mig einhverjum fúkyrðum sem ég skildi ekki. Magnað. Ég vissi ekki hvort ég átti að vera reiður eða bara hlægja. En ég ákvað bara að hlægja að þessu.
takk fyrir í bili..

Friday, July 01, 2005

Skrítið!!

Var að lesa eitthvað dagblað um daginn. Þar var kona að segja að það væri svo fáranlegt með allar þessar "Birgittur, Jónsa, og Bubba" hér á landi hve gjörn þau væru á að auglýsa sig um jólin. Sýna á sér sínar bestu hliðar, opinbera sitt fjölskyldu líf og persónulega hagi BARA til þess að GRÆÐA, (sem er auðvitað versta synd sem til er, er það ekki??). Svo þegar það hentar þeim ekki og umfjöllunin er slæm þá fara þessar stjörnur alltaf að væla!!!
OK!! FINE!! Semsagt þegar þessi kona fer t.d. í atvinnu viðtal þá hlýtur hún þá að segja frá öllum sýnum syndum er það ekki. Hún hlýtur að segja frá því þegar hún hélt framhjá manninum sýnum og líka frá því þegar hún ældi yfir sig alla á hestamannamótinu í fyrra. Hún hlýtur nú líka að sýna myndir af sér ofurölvi í KÖBEN með jónu í kjaftinum. Auðvitað gerir hún þetta til að sýna ALLS EKKI sýnar bestu hliðar því þá gæti hún hugsanlega fengið DJOBBIÐ og hugsanlega grætt pening. Og eins og við vitum er það ekkert nema hræsni.
Svo var önnur kona sem skrifaði í blaðið. Þar benti hún á að Slúðurblöð væru og hefðu verið til lengi lengi ERLENDIS. Þess vegnu ættu íslendingar ekkert að vera að kvarta yfir tilvist þeirra hérlendis. OH MY FUCCKING GOD!!! Af hverju eru til svona fávitar. Það er líka til BARNAÞRÆLKUN erlendis, morðtíðni er miklu hærri í Perú heldur en á Íslandi, menn hella sýru í andlit eiginkvenna sinna í Tyrklandi ef þeir gruna þær um framhjáhald. VERÐUM VIÐÞÁ EKKI AÐ HAFA SOLLEIS HÉRNA Á KLAKANUM!!! JÚ AUÐVITAÐ DRÍFUM Í ÞESSU!!!
AAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGHHHHH!!!!!!
Svo sagði Sverrir Stormsker að Bubba væri nú bara búinn að gefa út skotleyfi á sig með því að vera frægur. SVERRIR sagðist líka ætla að hjálpa DV að finna mýnd af sjálfum sér að rúnka sér. Sverrir er líka frægur svo að hann hlýtur að vilja vera næstur.
Takk fyrir í bili!!